|
|
Skólar á grænni grein - Grænfáninn
Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja komast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stígaskrefin sjö. Þegar því marki er náð fá skólarnir leyfi til að flaggaGrænfánanum næstu tvö ár en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Skrefin sjö eru ákveðin verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu í bekk og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau auka þekkingu nemenda og skólafólks og styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum skóla. Jafnframt sýnir reynslan í Evrópu að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri.
Skrefin sjö að Grænfánanum
Skólar á grænni grein þurfa að hafa tekið a.m.k. sjö eftirfarandi skref til bættrar umhverfisstjórnunar til að fá Grænfánann.
Þegar skrefin sjö hafa verið stigin getur skóli sótt um að fá Grænfánann. Þegar fáninn blaktir við hún er haldið áfram. Nýtt umhverfisráð er kosið sem setur sér ný markmið og keppist við til að skólinn fái Grænfánann endurnýjaðan eftir tvö ár.
Markmið Grænfánans eru að:
• Bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku.
• Efla samfélagskennd innan skólans.
• Auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu og utan.
• Styrkja lýðræðisleg vinnubrögð við stjórnun skólans þegar teknar eru ákvarðanir sem varða nemendur.
• Veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál.
• Efla alþjóðlega samkennd og tungumálakunnáttu.
• Tengja skólann við samfélag sitt, fyrirtæki og almenning.
Landvernd
Grænfánaverkefninu á Íslandi er stýrt af Landvernd (www.landvernd.is) sem er aðili að alþjóðlegu samtökunum FEE. Í stýrihópi um Grænfána eru Landvernd til fulltingis kennarar og fulltrúar frá umhverfisráðuneyti, Námsgagnastofnun og Kennarasambandi Íslands. |
|